
ÚTSKRIFTAR
SÝNING
obbosí
ef ég væri þú þá myndi ég skoða í tölvu!
Í STOFU
HEIMA


Ég sjálfur
Ég einn af eldri nemendum hópsins. Nýlega orðinn þrítugur en því fylgja auðvitað blendnar tilfinningar, eða þannig. Ég er fæddur og uppalinn í Garðabæ þar sem ég bjó í hart nær 23 ár. Þar kláraði ég bæði grunnskóla og stúdent í Fjölbraut í Garðabæ. Eftir stúdentinn tók við tímabil þar sem ég prófaði alls konar hluti, ég fór í háskóla en fann mig þar ekki. Ég lærði flug um stund og vann á leikskóla en að lokum endaði ég á tölvudeild Landspítalans þar sem ég vinn enn sem kerfisfræðingur. Í kjölfarið kláraði ég nám í kerfisfræði við NTV skólann.
Ljósmyndun og hönnun
Það hefur alltaf blundað í mér einhver þörf að tjá mig með listrænum hætti. Það var hins vegar ekki fyrr en í kringum árið 2011 sem að ég fór að stunda ljósmyndun af alvöru en ég hugsa að það sé að mestu leyti honum pabba mínum að þakka sem var mikill ljósmyndari og kenndi meðal annars ljósmyndun í Hagaskóla. Eftir það var ekki aftur snúið. Ljósmyndun hefur átt hug minn allan og þá sérstaklega landslags og náttúruljósmyndun.
Framtíðin
Eftir námið í Tækniskólanum liggur leiðin vonandi í Listaháskólann í frekara nám í grafískri hönnun. Námið í Tækniskólanum hefur gefið mér ótrúlega sterkan grunn til þess að takast á við það sem fram undan er og ég er ansi bjartsýnn á að það muni fleyta mér áfram í leit að leiðum til þess að skapa nýja spennandi hluti.
- Tjörvi Valsson

SKOÐIÐ
SKÓLA
VERKIN
MÍN

ÆSKAN OG SKÓGURINN
SÍÐASTI SÉNS
EMBLA TÍMARIT
RAM TÆKNIVERSLUN
VEFUR
FRÉTTABRÉF

ERTU
NOKKUÐ
AÐ GLEYMA
ÞÉR?
Gleymum okkur ekki á lokametrunum
MUNUM HANDÞVOTTINN
Verk
efni
UTAN
SKÓLA
